Eining-Iðja mun halda fjóra almenna fundi á félagssvæðinu á næstunni þar sem m.a. mun fara fram kosning á svæðisfulltrúum félagsins og varamönnum þeirra. Fundirnir verða túlkaðir á pólsku. Félagar, fjölmennum!
- Mánudagur 27. febrúar
- Hrísey: Á veitingastaðnum Verbúðin 66 kl. 20:00
- Dalvík: Í safnaðarheimili Dalvíkurkirkju kl. 20:00
- Um sameiginlegan fund er að ræða, staðirnir tveir verða tengdir í gegnum netið.
- Þriðjudagur 28. febrúar
- Fjallabyggð: Sameiginlegur fundur fyrir Siglfirðinga og Ólafsfirðinga kl. 20:00 á skrifstofu félagsins Eyrargötu 24b.
- Miðvikudagur 1. mars
- Grenivík: Á veitingastaðnum Kontórnum kl. 20:00
Dagskrá:
- Kosning á svæðisfulltrúa og varamanni.
- Hvað er VIRK?
- Vinnustaðaeftirlit félagsins
- Önnur mál.