Fjórða þing ASÍ-UNG

Fjórða þing ASÍ-UNG verður haldið á morgun, föstudaginn 23. september, í Rafiðnaðarskólanum, Stórhöfða 27. Eining-Iðja mun senda tvo fulltrúa á þingið, en á þingið mega þeir fara sem eru 35 ára og yngri og eru í aðildarfélögum ASÍ.

Farið verður yfir stöðu ungs fólks á húsnæðismarkaði sem og samtvinningu vinnu og fjölskyldulífs. Einnig ætlar hópurinn að rýna í stöðu ungs fólks innan hreyfingarinnar og hvernig virkja má hóp 35 ára og yngri betur.