Fjölgun starfa milli ára

Á vef SGS er fjallað um nýtt ársfjórðungsrit Hagstofunnar þar sem birtar eru vinnumarkaðstölur frá 2. ársfjórðungi 2013 og gerð grein fyrir töluverðri fjölgun starfa miðað við sama tímabil 2012. Fjölgunin nemur 2.800 störfum og á sama tíma fjölgar starfsmönnum í fullu starfi um 3.500. Það dregur því úr atvinnuleysi og heilsdagsstörfum fjölgar á meðan hlutastörfum fækkar um 200. Þetta verður til þess að heildarvinnutími hefur aukist á milli tímabila. Atvinnuleysi mælist nú 6,8% og hefur minnkað úr 7,2% miðað við sama ársfjórðung í fyrra.

Þegar atvinnuþátttaka karla annars vegar og kvenna hins vegar er skoðuð birtist ólík mynd. Konum í fullu starfi fækkar um 400 milli tímabila á meðan körlum í fullu starfi fjölgar um 3.800. Á öðrum ársfjórðungi 2013 voru karlar í hlutastörfum 11% þeirra sem eru í starfi en konur 34,8%. Vinnutími karla eykst töluvert, eða um 0,8 klst. á meðan vinnutími kvenna eykst um 0,3 klst. Rösklega dregur úr vinnutíma karla í hlutastarfi á meðan vinnutími kvenna í hlutastarfi stendur í stað. Körlum á atvinnuleysisskrá fjölgar milli ársfjórðunga um 500 en konum fækkar um 900. Atvinnuleysi karla er 7,4% og kvenna 6,2%.

Enn veldur atvinnuleysi meðal ungs fólks áhyggjum en það mælist 16,2% í aldurshópnum 16-24 ára, þó nokkuð dragi úr því á milli ára. Þá kemur fram í að ungt fólk er líklegra til að vinna hlutastörf og heildarvinnutími þeirra er lægri en í öðrum aldurshópum.

Nýjasta rit Hagstofunnar um vinnumarkaðinn má nálgast hér.