Þó nokkur fjöldi Dalvíkinga og nærsveitunga kíkti á skrifstofu félagsins á Dalvík sl. föstudag þegar fram fór formleg opnun hennar. Í byrjun desember flutti skrifstofan í Hafnarbraut 5, en eins og áður segir fór formleg opnun hennar fram sl. föstudag milli kl. 15 og 18. Þá var hægt að kíkja á nýju skrifstofuna, fá sér veitingar og hitta starfsmenn félagsins og Virk ráðgjafa. Á svæðinu voru einnig starfsmenn frá Pacta og Enor, en þeir eru með starfsaðstöðu á skrifstofunni.
Allir sem mættu gátu tekið þátt í happdrætti, það eina sem þurfti að gera var að rita nafn sitt og símanúmer og þá var viðkomandi kominn í pott sem dregið var úr í lok dags. Úr pottinum voru dregin nöfn sex heppinna vinningshafa og mun Freydís hafa samband við þá, ef hún er ekki nú þegar búin að því.
Þeir sem fengu vinning eru:
Eining-Iðja þakkar öllum sem litu við á skrifstofuna og eins óskar félagið vinningshöfunum til hamingju.
Fleiri myndir má finna hér