Fjarfundur - Rétta leiðin í ríkisfjármálum

Vert er að benda á áhugavert fjarfundarerindi núna í hádeginu, miðvikudaginn 11. nóvember, kl. 12:30.

Til að bregðast við efnahagskreppunni í kjölfar COVID-19 faraldursins hafa ríki heims snaraukið útgjöld til að halda hagkerfum sínum á floti. Alþjóðastofnanir hafa stutt þessa aðferð og varað við niðurskurðarstefnu, sem þó var ríkjandi viðbragð eftir fjármálakreppuna 2008. Hver er rétta leiðin í ríkisfjármálum á krepputímum og hver er rétta leiðin til að draga úr langvinnum skaða af yfirstandandi kreppu? Hvað verður um skuldir hins opinbera í framtíðinni?
Peter Bofinger fjallar um réttu leiðina í ríkisfjármálum á krepputímum. Hann er einn af virtustu hagfræðingum Þýskalands og hefur fjallað ítarlega um efnahagsleg áhrif COVID-19 faraldursins. Bofinger er prófessor við Würzburg háskólann og var um árabil tilnefndur fulltrúi verkalýðshreyfingarinnar í ráðgjafaráði þýskra stjórnvalda um efnahagsmál.

Varða – rannsóknastofnun vinnumarkaðarins, ASÍ og BSRB standa fyrir röð af hádegisfyrirlestrum um réttu leiðina út úr kreppunni. Á fundunum er fræðileg umfjöllun fléttuð saman við reynslu af skipulögðu starfi verkalýðshreyfinga og annarra almannasamtaka.
Fundirnir fara fram í gegnum Zoom og eru öllum opnir. Boðið er upp á túlkun yfir á íslensku og til að nýta hana þarf að smella á lítinn hnött sem birtist í stikunni og velja túlkun. Hægt er að velja „mute orginal sound“ til að heyra eingöngu í túlknum.