Fjarfundur - Rétta leiðin í bankastarfsemi

Vert er að benda á spennandi hádegiserindi í fjarfundi í hádeginu á morgun, fimmtudaginn 18. febrúar, kl. 12:30. Fundurinn er öllum opinn.

Eftir efnahagshrunið 2008 eignaðist íslenska ríkið bankakerfið og samtímis möguleikana til þess að ákveða hvernig bankakerfinu skuli háttað til framtíðar. Fyrir hvern á bankakerfið að vinna og í hvers eigu skal það vera? Lydia Prieg, aðalhagfræðingur bresku hugveitunnar New Economics Foundation, fjallar um hlutverk samfélagsbanka og veitir innsýn í starfsemi slíkra banka í öðrum löndum. Ásgeir Brynjar Torfason, doktor í fjármálum og fulltrúi í fjármálaráði, fjallar um samfélagsbanka í samhengi við íslenska bankakerfið. Guðmundur D. Haraldsson frá Öldunni er fundarstjóri.

Lýðræðisfélagið Alda og Varða – rannsóknastofnun vinnumarkaðarins standa sameiginlega fyrir hádegisfundinum um réttu leiðina í bankastarfsemi ásamt ASÍ og BSRB.

Fundirnir fara fram í gegnum Zoom og eru öllum opnir. Boðið er upp á túlkun yfir á íslensku og til að nýta hana þarf að smella á lítinn hnött sem birtist í stikunni og velja túlkun. Hægt er að velja „mute orginal sound“ til að heyra eingöngu í túlknum.

Smellið hér til að taka þátt