Í janúar 2016 tók til starfa verkefnahópur á vegum Stjórnstöðvar ferðamála sem var ætlað að greina þarfir fyrir heildstæðar úrbætur sem styðja við hæfni, gæði, fagmennsku og þekkingu innan ferðaþjónustunnar og vinna að skilvirkum niðurstöðum til úrbóta. Þess má geta að Fjóla Jónsdóttir, fræðslustjóri Eflingar stéttarfélags, sat í verkefnahópnum.
Afurð hópsins var skýrsla sem kom út í fyrradag undir yfirskriftinni: Hæfni og gæði í ferðaþjónustu – Fjárfestum í hæfni starfsmanna. Í skýrslunni er fjallað um tillögur sem snerta mannafla, hæfni og gæði í ferðaþjónustu á landsvísu. Settar eru fram þrjár tillögur með forgangsverkefnum fyrir árin 2016-2018.
Skýrsluna í heild sinni má nálgast hér.