Fjallabyggð: Kynningarfundur í dag

Í dag, miðvikudaginn 10. júní verður félagið með kynningarfund í Fjallabyggð á nýjum kjarasamningi við Samtök atvinnulífsins. Þessi fundur er fyrir þá sem starfa á almenna markaðinum, ekki er enn búið að semja fyrir þá sem starfa hjá ríki og sveitarfélögum.

  •  Fjallabyggð, á skrifstofu félagsins Eyrargötu 24 b kl. 20:00

Dagskrá:

  1. Kynning á nýjum kjarasamningi.
  2. Önnur mál.

 

Sýnum ábyrga afstöðu!

Mætum og kynnum okkur samninginn áður en við greiðum atkvæði.