Kynningarfundur í kvöld í Fjallabyggð

Í vikunni mun félagið halda nokkra kynningarfundi á nýjum kjarasamningi SGS og SA. Í dag, miðvikudaginn 8. janúar, verður fundur kl. 20:00 í Fjallabyggð, á skrifstofu félagsins Eyrargötu 24b Siglufirði.

ATH boðið verður upp á akstur frá Tjarnarborg kl. 19:35 fyrir þá sem búa á Ólafsfirði og ætla að mæta á fundinn. Vinsamlegast látið vita í síma 899 5873 ef þið ætlið að fá far.

Þessir fundir eru fyrir þá sem starfa á almenna markaðinum, ekki er enn búið að semja fyrir þá sem starfa hjá ríki og sveitarfélögum.

Dagskrá:

1. Kynning á nýjum kjarasamningi.

2. Önnur mál.

 

Félagar, fjölmennum!