Fjallabyggð: Breyttur opnunartími í ágúst

Magga, starfsmaður skrifstofu félagsins í Fjallabyggð, er að fara í sumarfrí og því verður skrifstofan opin á milli kl. 9 og 13 í ágúst. Ólafía Anna Þorvaldsdóttir mun leysa Möggu af.

Hikið ekki við að hringja í félagið í síma 460 3600 á öðrum tíma ef þið þurfið aðstoð, því starfsmenn félagsins á skrifstofunum á Akureyri eða á Dalvík munu þá svara.