Ferðin til Austurríkis - örfá sæti laus

Farið verður til Austurríkis dagana 9. til 16. ágúst 2018 því lágmarksþátttöku er náð og fer lausum sætum óðum fækkandi. Hámark 50 manns. Einnig gengur vel að skrá í innanlandsferðina.

Það er ekki eftir neinu að bíða með að skrá sig fyrir þá sem hug hafa á að fara með, því bæði er um að ræða lágmarks- og hámarksfjölda í ferðirnar. Kíkið við á skrifstofur félagsins, hringið í síma 460 3600 eða sendið póst á netfangið ein@ein.is og látið skrá ykkur ef áhugi er fyrir hendi.

  • Fjögurra daga fjallaferð um Suðausturland 25. til 28. júní 2018
  • Austurríki 9. til 16. ágúst 2018, 

Nánar má lesa um allar ferðirnar þrjár sem boðið er upp á árið 2018 hér.

Hægt er að borga fyrir ferðirnar með kreditkorti og er jafnframt hægt að semja um greiðslur, þ.e. skipta þeim á nokkur tímabil.

Athugið að síðar verður auglýst hvenær byrjað verður að skrá í eins dags ferðina.