Ferðakvöld – Utanlandsferðin rifjuð upp

Í kvöld ætla félagsmenn og makar sem fóru í utanlandsferð félagsins sl. sumar að hittast í sal félagsins á Akureyri og rifja upp ferðina í máli og myndum. Í ár var farið til Ítalíu. Slík ferðakvöld eru haldin á hverju ári, bæði fyrir innanlandsferðina sem og utanlandsferðina.

Á þessum kvöldum koma alltaf fjölmargir með myndir sem ganga manna á milli til sýnis og sumar sýndar upp á vegg. Einnig er lesin ferðasaga sem einhver úr hópnum hefur ritað, en sú saga birtist líka í jólablaði félagsins.