Ferðakvöld - Innanlandsferðin rifjuð upp

Hópurinn sem fór í innanlandsferðina í ár
Hópurinn sem fór í innanlandsferðina í ár

Í kvöld ætla félagsmenn og makar sem fóru í innanlandsferð félagsins sl. sumar að hittast í sal félagsins á Akureyri og rifja upp ferðina í máli og myndum. Í ár var farið um suðurland, kíkt til Vestmannaeyja og í Þórsmörk.

Slík ferðakvöld eru haldin á hverju ári, bæði fyrir innanlandsferðina sem og utanlandsferðina. Á þessum kvöldum koma alltaf fjölmargir með myndir sem ganga manna á milli til sýnis og einnig er lesin ferðasaga sem einhver úr hópnum hefur ritað, en sú saga birtist líka í jólablaði félagsins.