Ferð fyrir eldri félagsmenn - skráning stendur yfir

Eins dags ferð fyrir eldri Einingar-Iðjufélaga verður farin fimmtudaginn 13. júní nk. Lagt verður af stað kl. 9 með rútu frá Alþýðuhúsinu, Skipagötu 14. Farið verður austur um Melrakkasléttu til Raufarhafnar. Þaðan verður farið til Þórshafnar þar sem hádegisverður verður snæddur og svo til Húsavíkur þar sem drukkið verður kaffi. Þaðan verður svo ekið aftur til Akureyrar.

Ferðin kostar kr. 5.000 á mann, greitt í rútunni.

Skráning í ferðina er á skrifstofum félagsins og í síma 460 3600 til 10. júní nk.