Félagsmenn athugið!

Vegna náms- og kynnisferðar starfsmanna félagsins verður starfsemi skrifstofunnar á Akureyri í lágmarki dagana 22. til 24. apríl nk. Aðeins einn starfsmaður verður á skrifstofunni og einn VIRK ráðgjafi og munu þær gera sitt besta til að þjóna félagsmönnum og öðrum þeim sem leita eftir aðstoð.

Skrifstofan í Fjallabyggð verður lokuð þar sem starfsmaður hennar verður við vinnu á Akureyri, en hægt verður að kaupa miða í Hvalfjarðargöngin hjá Sigrúnu Agnarsdóttur. Hægt er að ná í hana í síma 891 6938 á venjulegum skrifstofutíma.

Skrifstofan á Dalvík verður opin á milli kl. 10:00 og 14:00.