Félagsmenn athugið!

Að gefnu tilefni vill félagið taka fram að samningurinn sem gerður var við Samtök atvinnulífsins sl. miðvikudag nær einungis til þeirra sem starfa á almenna markaðinum. Það er ekki búið að semja fyrir félagsmenn sem starfa hjá ríki eða sveitarfélögum, en viðræður um þá samninga eru hafnar.