Félagið og VIRK á Starfamessu

Síðastliðinn föstudag var Starfamessa grunnskólanna á Akureyri haldin í þriðja sinn. Yfir 30 fyrirtæki og félög komu saman í Háskólanum á Akureyri og kynntu hin ýmsu störf fyrir nemendum í 9. og 10. bekk, þar á meðal voru nokkrir starfsmenn frá Einingu-Iðju og VIRK. Alls voru rúmlega 700 nemendur sem fengu fróðlegar og skemmtilegar kynningar.