Fékkst þú launahækkun um síðustu mánaðamót?

Nýr kjarasamningur aðildarsamtaka ASÍ við SA frá 21. janúar 2016 var samþykktur þann 24. febrúar síðastliðinn, það er fyrir þá félagsmenn sem starfa á almenna vinnumarkaðinum (ekki hjá ríki eða sveitarfélagi). Samkvæmt nýja samningnum kemur 6,2% almenn launahækkun, að lágmarki kr. 15.000 á mánuði, í stað 5,5% launaþróunartryggingar.  Launahækkunin gildir frá 1. janúar 2016 í stað 1. maí 2016, sem þýðir að leiðrétta þarf laun fólks aftur í tímann.

Eining –Iðja vill því minna félagsmenn sem starfa á almenna markaðinum á að skoða vel launaseðla sína til að ganga úr skugga um að launahækkanirnar hafi örugglega skilað sér. Ef einhverjar spurningar vakna ættu félagsmenn ekki að hika við að hafa samband.

Nýr kauptaxti Einingar-Iðju við SA (almennur vinnumarkaður)