Fékkst þú launahækkun?

Eining-Iðja tekur undir með Starfsgreinasambandinu þar sem það minnir launafólk á að ganga úr skugga um hvort kjarasamningsbundar launahækkanir hafi skilað sér, en þann 1. maí  síðastliðinn hækkuðu laun og launatengdir liðir á almennum vinnumarkaði um 4,5%. Hjá starfsfólki sveitarfélaganna tóku launahækkanir gildi frá 1. júní sl., en þá hækkuðu mánaðarlaun um 2,5% og 1,7% vegna jöfnunar á bilum milli launaflokka í launatöflu. Þá hækkuðu laun hjá starfsfólki ríkisins um 4,5% frá og með 1. júní 2017.

Fólk er hvatt til að yfirfara launaseðla sína vandlega og bregðast við verði það vart við að umræddar launahækkanir hafi ekki skilað sér.

Kauptaxtar fyrir starfsfólk á almennum markaði (PDF)

Kauptaxtar SGS fyrir starfsfólk hjá ríkinu (PDF)

Kauptaxtar SGS fyrir starfsfólk hjá sveitarfélögum (PDF)