Farið yfir stöðuna

Í gær hélt félagið fund með þeim trúnaðarmönnum Einingar-Iðju sem starfa hjá sveitarfélögunum á félagssvæðinu. Björn Snæbjörnsson, formaður félagsins, fór þar yfir stöðu mála varðandi samningaviðræður við Samband íslenskra sveitarfélaga.

Góð mæting var á fundinn þar sem miklar umræður urðu um málefnið en það stefnir allt í að samningaviðræðunum verði vísað til sáttasemjara því mikið ber í milli.