Farið yfir stöðuna

Í gær var haldinn fundur með þeim sem eru trúnaðarmenn og í trúnaðarráði félagsins innan Opinberu deildarinnar. Á fundinum var farið yfir stöðu samningamála og kannað hvað þessi hópur hefur að segja varðandi endurskoðun samninga í byrjun næsta árs. Góð mæting var á fundinn og urðu miklar og góðar umræður um málið.

Sambærilegir fundir verða haldnir í hinum deildum félagsins. Þann 28. nóvember nk. verður fundur í Matvæla- og þjónustudeild í salnum á 4. hæð í Alþýðuhúsinu á Akureyri og 3. desember verður fundur í Iðnaðar- og tækjadeild, sá fundur verður haldinn í sal félagsins á Akureyri. Báðir fundirnir hefjast kl. 20:00.