Færð þú orlofsuppbót?

Eining-Iðja vill minna félagsmenn sína á að starfsmenn á almenna markaðnum og hjá ríkinu fá 28.700 krónur greiddar í orlofsuppbót þann 1. júní nk. miðað við fullt starf. Hjá starfsfólki sveitarfélaga er upphæðin 38.000 krónur miðað við fullt starf og átti að greiðast 1. maí sl.