Erum á vaktinni

Vel búnir verkfallsferðir
Vel búnir verkfallsferðir

Verkfallsverðir eru búnir að vera a ferðinni í dag öllu félagssvæðinu, á Akureyri, í Fjallabyggð, á Dalvík, á Grenivík og í Hrísey, og verða á vaktinni til miðnættis. Verkfallsmiðstöðvar eru á skrifstofum félagsins og verða opnar á meðan verkfalli stendur. Eining-Iðja hvetur félagsmenn sem eru í verkfalli til að sýna samstöðu og mæta og taka þátt í verkfallsvörslu. 

Verkfallsvarsla hefur gengið mjög vel í dag, þrátt fyrir smá hnökra á örfáum stöðum sem leyst var úr á viðkomandi stað.

Grunur um verkfallsbrot
Ef félagsmenn Einingar-Iðju verða varir við verkfallsbrot eru þeir vinsamlegast beðnir um að hafa samband við einhverja skrifstofu félagsins í síma 460 3600. Einnig er hægt að hringja í Björn formann í síma 894 0729eða Önnu varaformann í síma 662 0176.