Ertu búinn að skila? (eða taka þátt?)

Í síðustu viku stóð félagið fyrir könnun á meðal félagsmanna varðandi hvað beri að leggja áherslu á við gerð næstu kjarasamninga. Trúnaðarmenn félagsins sáu um að koma spurningalistum á samstarfsmenn sína og skila svörum þeirra til félagsins. Fjölmörg svör hafa borist en enn eiga nokkrir trúnaðarmenn eftir að skila listunum til félagsins til úrvinnslu og biðjum við þá að skila þeim sem fyrst á einhverja af skrifstofum Einingar-Iðju.

Þeir sem enn hafa ekki svarað spurningalistanum geta einnig komið við á næstunni á einhverja af skrifstofum félagsins og tekið þátt.

Mjög mikilvægt er að fá góða svörun. Takið virkan þátt í undirbúningi félagsins í kröfugerð fyrir komandi kjarasamninga!