Ert þú búin(n) að svara?

Nú stendur yfir könnun á meðal félagsmanna til að ná fram sem bestum upplýsingum um vilja félagsmanna þeirra varðandi það hvað leggja beri áherslu á við gerð næstu kjarasamninga. Trúnaðarmenn félagsins sjá um að koma spurningalistum á samstarfsmenn sína. Síðasti dagur til að svara er föstudagurinn 10. maí nk.

Þeir sem ekki hafa fengið afhentan spurningalista eru vinsamlegast beðnir um að koma við á einhverja af skrifstofum félagsins eða hafa samband við sinn svæðisfulltrúa til að fá könnun.

Mjög mikilvægt er að fá góða svörun. Takið virkan þátt í undirbúningi félagsins í kröfugerð fyrir komandi kjarasamninga!