Enskunámskeið fyrir félagsmenn

Eining-Iðja í samvinnu við SÍMEY ætlar að bjóða upp á 12. klst. enskunámskeið fyrir félagsmenn. Námskeiðið er hugsað fyrir byrjendur eða þá sem eingöngu hafa grunnþekkingu í ensku en vilja styrkja undirstöður og leggja áherslu á tal og grunnorðaforða.

Kennt verður milli kl. 19 og 21 þriðjudagana 15., 22. og 29. október og 5., 12. og 19. nóvember. Námskeiðið verður haldið í SÍMEY, Þórsstíg 4. 

Námskeiðið er ókeypis fyrir félagsmenn 

Leiðbeinandi: Laufey Hallfríður Svavarsdóttir 

Skráning sem fyrst í síma 460 3600 eða á annajul@ein.is