Pláss fyrir tvo - Þriðja konfektnámskeiðinu bætt við

Enn er pláss fyrir tvo á námskeiðið. 

Nýlega auglýsti félagið konfektnámskeið, sem fylltist strax. Bætt við við öðru námskeiði sem líka er orðið fullt og því hefur verið ákveðið að bæta við þriðja námskeiðinu sem verður haldið ef næg þátttaka næst. Þriðja námskeiðið verður mánudaginn 28. nóvember kl. 19:00 í sal félagsins á Akureyri. 

Ekkert námskeiðsgjald - en efniskostnaður er kr. 1.500.

Hámarksfjöldi: 12

Leiðbeinandi: Hulda Einarsdóttir

Skráning á skrifstofum Einingar-Iðju sem fyrst og í síma 460 3600, á venjulegum opnunartíma.