Enn dregur úr atvinnuleysi

Staða á vinnumarkaði fer batnandi og enn dregur úr atvinnuleysi samkvæmt nýjum tölum Hagstofunnar. Á þriðja ársfjórðungi 2014 voru að meðaltali 7.700 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 4% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 4,5% hjá konum og 3,5% hjá körlum. Samanburður þriðja ársfjórðungs 2014 við sama ársfjórðung 2013 sýnir að atvinnulausum fækkaði um 600 og hlutfallið lækkaði um 0,4 prósentustig. Atvinnuleysi hefur ekki mælst jafn lágt í ársfjórðungum síðan á fjórða ársfjórðungi 2008, en þá mældist atvinnuleysi einnig 4%.


 

Nokkuð hefur dregið úr langtímaatvinnuleysi
Þeir sem hafa verið atvinnulausir í 12 mánuði eða lengur eru skilgreindir sem langtímaatvinnulausir. Þegar litið er til síðustu 12 mánaða hefur dregið nokkuð úr langtímaatvinnuleysi hvað fjölda varðar. Á þriðja ársfjórðungi 2014 höfðu um 900 manns verið langtímaatvinnulausir eða 0,5% vinnuaflsins samanborið við 1.900 eða 1% vinnuaflsins á þriðja ársfjórðungi 2013. Langtímaatvinnuleysi hefur ekki mælst jafn lágt síðan á þriðja ársfjórðungi 2009.



 

Atvinnulausir teljast þeir sem voru án atvinnu í viðmiðunarviku könnunarinnar, þ.e. höfðu hvorki atvinnu né voru í vinnu (í eina klukkustund eða lengur) sem launþegi eða sjálfstætt starfandi, eru að leita að vinnu og geta hafið störf innan tveggja vikna eða hafa fengið starf sem hefst innan 3 mánaða. Einstaklingar sem eru ekki í vinnu en eru í námi flokkast atvinnulausir ef þeir uppfylla skilyrðin hér að ofan. Fólk telst vera starfandi ef það hefur unnið eina klukkustund eða meira í viðmiðunarviku könnunar eða verið fjarverandi frá starfi sem það gegnir að öllu jöfnu.

Atvinnuþátttaka 82,4%

Á þriðja ársfjórðungi 2014 voru að jafnaði 190.400 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði og fjölgaði um 1% frá sama tíma ári áður eða um 1.900 manns. Jafngildir þetta 82,4% atvinnuþátttöku. Fjöldi fólks utan vinnumarkaðar var 40.800 og er það fjölgun um 1.500 manns frá fyrra ári eða um 3,8%. Atvinnuþátttaka kvenna var 79,4% og karla 85,3%. 

Á þriðja ársfjórðungi 2013 voru alls 188.500 á vinnumarkaði eða 82,7% atvinnuþátttaka og utan vinnumarkaðar voru þá 39.300. Atvinnuþátttaka kvenna var þá 79,8% og karla 85,7%.

Á vinnumarkaði eða til vinnuaflsins teljast bæði þeir sem eru starfandi og atvinnulausir. Atvinnuþátttaka er hlutfall starfandi og atvinnulausra (vinnuafl) af mannfjölda 16-74 ára.


 

Dregur úr fjölgun starfandi fólks
Á þriðja ársfjórðungi 2014 voru 182.800 manns starfandi eða 79,1% af mannfjölda. Hlutfall starfandi kvenna var 75,7% og starfandi karla 82,3%. 

Frá öðrum ársfjórðungi 2013 fjölgaði starfandi fólki um 1,4% eða um 2.600 manns, en hlutfall þess af mannfjölda stóð hins vegar í stað á milli ára.

Hagtíðindi
Þessar niðurstöður eru meðal efnis í nýju hefti Hagtíðinda um vinnumarkað á þriðja ársfjórðungi 2014.