Í dag og á morgun, 14. og 15. október, fer fimmta þing Starfsgreinasambands Íslands haldið á Hótel Natura í Reykjavík. Yfirskrift þingsins er "Sterkari saman í 15 ár." 12 fulltrúa frá Einingu-Iðju munu sitja þingið. Þegar formaður Starfsgreinasambandsins og Einingar-Iðju, Björn Snæbjörnsson, hefur sett þingið munu þau Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, flytja ávörp.
Starfsgreinasamband Íslands (SGS) er landssamband almenns og sérhæfðs verkafólks. SGS er stærsta landssamband innan ASÍ, en 19 verkalýðsfélög eiga aðild að sambandinu með um 50 þúsund félagsmenn.
Aðildarfélög SGS eru þessi:
Efling-stéttarfélag, Vlf. Akraness, Stéttarfélag Vesturlands, Vlf. Snæfellinga, Vlf. Vestfirðinga, Vlsfél. Bolungarvíkur, Stéttarfélagið Samstaða, Aldan stéttarfélag, Eining-Iðja, Framsýn stéttarfélag, Vlf. Þórshafnar, Afl-Starfsgreinafélag, Vlf. Suðurlands, Báran stéttarfélag, Drífandi stéttarfélag, Vfl. Grindavíkur, Vlsfél. Keflavíkur og nágrennis (VSFK), Vlsfél. Sandgerðis og Vlf. Hlíf.
Dagskrá 5. þings Starfsgreinasambands Íslands Hótel Natura í Reykjavík 14.-15. október 2015
Miðvikudagur 14. október 2015
Fimmtudagur 15. október 2015