Endurúthlutun orlofshúsa lokið

Nýlega var lokið við að endurúthluta orlofshúsum félagsins fyrir sumarið. Enn eru lausar vikur í sumar, á ýmsum tímabilum og stöðum. Á Félagavefnum má sjá hvaða hús eru enn á laus og jafnframt bóka þau. Þeir sem ekki eru enn komnir með aðgang að Félagavefnum geta hringt á skrifstofur félagsins í síma 460 3600, eða mætt á svæðið og fengið upplýsingar um laus hús. Nú gildir fyrstir panta, fyrstir fá.