Endurskoðað starfsmat sveitarfélaganna

Þau störf sem félagsmenn í aðildarfélögum Starfsgreinsambandsins, þar á meðal Einingu-Iðju, inna af hendi hjá sveitarfélögum eru metin í stigum eftir ákveðnu kerfi og fjöldi stiga segir til um hversu mikið er greitt fyrir hvert starf, þ.e. hvar það lendir í launatöflunni. Í þar síðustu kjarasamningum var ákveðið að ráðast í endurmat á öllum störfum sem rúmast innan kjarasamninga SGS og Samband Íslenskra sveitarfélaga og er þeirri endurskoðun nú lokið. Niðurstaðan er sú að flest störf eru metin til hærri stiga en þau voru áður og skilar það sér í hækkun á launaflokkum. Af 161 starfsheiti sem eru til í mörgum sveitarfélögum hækka 154 um launaflokka, 7 standa í stað en ekkert lækkar um launaflokk. Mest hækkar mat á einstaka starfi sem samsvarar 10 launaflokkum. 

Afturvirkt frá 1. maí 2014
Auk þessara starfa er fjöldinn allur af staðbundnum störfum hjá einstaka sveitarfélögum sem hafa einnig verið endurmetin. Þær leiðréttingar sem gerðar hafa verið eiga að vera afturvirkar frá 1. maí 2014. Það er því ljóst að margir starfsmenn sveitarfélaga geta vænst þess að fá leiðréttingu á sínum launum heilt ár aftur í tímann, auk þess að raðast hærra í launaflokk í framtíðinni. Fyrir 1. ágúst nk., þó ekki síðar en 1. september skal vera búið að raða starfsmanni í réttan launaflokk út frá nýju starfsmati. Í ljósi þess að um töluverða vinnu er að ræða er sveitarfélögum gefið svigrúm til 1. október 2015 til að leiðrétta launin aftur í tímann. 

Sveitarfélögin hafa fengið nýtt starfsmat í hendurnar og stéttarfélögin líka. Nú er að fylgjast með hvort að leiðréttingar skili sér, hvort starfsfólki sé raðað rétt í launatöfluna o.s.frv. Til að sjá breytingarnar má fletta upp störfum HÉR. Hafið samband við launadeild sveitarfélagsins eða stéttarfélagið ef spurningar vakna. Frekari upplýsingar um starfsmatið má nálgast hér. 

Akureyrarbær er búinn að gefa það út að allir nýir ráðningarsamningar verða gerðir með nýrri röðun, að réttir launaflokkar verða greiddir til allra þann 1. september nk. og að leiðréttingar verða greiddar út þann 1. október nk. Ekki er vitað hvort önnur sveitarfélög á svæðinu ætla að miða við 1. ágúst eða 1. september.

Sjá breytingar hér bæði í stigum og einnig í krónum. ATH! útreikningur miðast við grunntaxta. Þeir sem eru með persónustig þurfa að reikna sig sértstaklega út.