Eitt hús stækkað á Illugastöðum

Á síðasta fundi í aðalstjórn félagsins var ákveðið að stækka hús félagsins nr. 18 á Illugastöðum og eru framkvæmdir hafnar við það. Eftir stækkun verður húsið um 80 fermetrar að stærð, en viðbyggingin sjálf er um 30 fermetrar. Áætlanir gera ráð fyrir að það verði tilbúið næsta vor.

Sl. föstudag var unnið við að steypa grunninn undir viðbygginguna og má sjá nokkrar myndir af því í fréttinni, ásamt teikningar af húsinu eftir stækkunina.