Eins dags ferðin

Nú stendur yfir eins dags ferð fyrir aldraða félagsmenn. Ekið var af stað frá Akureyri kl. 9 í morgun í sól og blíðu og var stefnan tekin á Sauðárkrók. Ekið var sem leið lá yfir Öxnadalsheiði og eftir að hafa stoppað aðeins í Varmahlíð og kíkt á Grettislaug á Reykjaströnd er hópurinn nú á Sauðárkróki þar sem snæddur verður hádegisverður á Kaffi Krók.

Eftir hádegi verður farið fyrir Skagann og yfir Þverárfjall og síðan eins og leið liggur til Siglufjarðar þar sem drukkið verður kaffi. Að því loknu verður keyrt til Akureyrar á ný.

Fleiri myndir verða settar í myndasafnið á heimasíðunni á morgun.