Einingar-Iðjufélagar...

Nú er sumarblað félagsins í vinnslu og gaman væri að fá ábendingar um efni í það. Ef þú vilt koma einhverju á framfæri í blaðinu þá tekur Ásgrímur ritstjóri á móti öllum ábendingum í síma 460 3600 eða í gegnum netfangið asgrimur@ein.is

  • Hefur þú frá einhverju áhugaverðu að segja? 
  • Ert þú að gera eitthvað forvitnilegt? 
  • Ert þú að búa til eitthvað sem tengist sumrinu? 
  • Eða bara hvað sem er, hafðu þá samband.

Ritnefnd blaðsins fer yfir allar tillögur sem berast og velur úr þeim.