Eining-Iðja sendir Seyðfirðingum stuðnings- og baráttukveðjur á þessum erfiðu tímum. Stjórn félagsins samþykkti samhljóða á fundi í gær að styrkja Björgunarsveitina Ísólf og Rauða krossinn með fjárframlögum og hvetur aðra til að gera slíkt hið sama. Jafnframt var ákveðið að tvö húsa félagsins á Einarsstöðum yrði notuð án gjalds til Seyðfirðinga sem þyrftu á því að halda á meðan óvissan væri til staðar.
Stöndum saman og leggjum okkar lóð á vogarskálarnar til að létta þungum byrðum af félögum og vinum fyrir austan. Hugur okkar og hjarta eru hjá ykkur Seyðfirðingar!
Rauði krossinn Seyðisfirði
Kt: 620780-3329
Rnr: 0176-26-30
Björgunarsveitin Ísólfur Seyðisfirði
Kt: 580484-0349
Rnr: 0176-26-5157