Eining-Iðja og SÍMEY halda dyravarðanámskeið - skráningarfrestur er til og með 21. september

Vert er að benda á að næsta dyravarðanámskeið í SÍMEY mun fara fram á tímabilinu 28. september til 7. október 2020, þrjú kvöld í hvorri viku. 

Hvenær: 28., 29. og 30. september og 5., 6. og 7. október.

Lágmarksaldur:  20 ár

Skilyrði til þátttöku: Enginn getur gengt dyravörslu nema þeir sem lögreglustjóri samþykkir. Nemendur þurfa að hafa hreint sakavottorð.

Umsókn um þátttökuFylla þarf út umsókn til lögreglunnar á NE um þátttöku í námskeiðinu  og skila til SÍMEY, Þórsstíg 4 í síðasta lagi 21. september nk.  

Skráningarfrestur er til og með 21. september.

Athugið - Félagsmenn í stéttarfélaginu Eining Iðja, starfsmenntasjóðurinn Landsmennt greiðir námskeiðsgjald vegna þátttöku á námskeiðinu.  

Skráning og nánari upplýsingar