Eingreiðsla fyrir starfsmenn ríkis og sveitarfélaga

Eining-Iðja vill minna félagsmenn, sem starfa hjá ríki og sveitarfélögum, á sérstaka eingreiðslu sem á að greiðast þann 1. febrúar næstkomandi.

  • Kr. 42.500 hjá sveitarfélögunum
    • Um er að ræða kjarasamningsbundna eingreiðslu sem greiðist hverjum starfsmanni miðað við fullt starf sem var við störf í desember 2018 og er enn í starfi í janúar 2019. Upphæðin greiðist hlutfallslega miðað við starfstíma og starfshlutfall í desember 2018.
  • Kr. 45.000 hjá ríkinu
    • Um er að ræða kjarasamningsbundna eingreiðslu sem greiðist hverjum starfsmanni miðað við þá sem eru í fullu starfi í janúar 2019. Þeir sem eru í hlutastarfi og/eða hafa starfað hluta úr mánuði skulu fá hlutfallslega greiðslu.