Ein fimm herbergja íbúð er laus til leigu í nýju húsi Bjargs við Gudmannshaga 2 á Akureyri. Íbúðin er 90,1 fm. og er á 3. hæð í lyftuhúsi.
Áætlað leiguverð er kr. 196.000 á mánuði. Leigutakar eiga almennt rétt á húsnæðisbótum og í einhverjum tilfellum sérstökum húsnæðisstuðningi til að koma til móts við leigugjaldið. Hlutfall íbúðar í sameiginlegum kostnaði er um 11.000 á mánuði.
Hér má sjá myndband úr íbúðinni
Hér má sjá 360° myndir.
Úthlutun hlýtur sá umsækjandi sem uppfyllir öll skilyrði um úthlutun; hefur greitt til stéttarfélags innan ASÍ eða BSRB í a.mk. 16 mánuð, litið til sl. 24 mánuði við úthlutun og er innan tekjumarka, þá að skattskyldar tekjur séu ekki hærri en 5.345.000/7.484.000 (einstaklingur/hjón) skv. skattaframtali 2019 og hefur lægsta númer á biðlista hjá Bjargi.