Dyravarðanámskeið - skráning stendur yfir

Eining-Iðja, í samstarfi við Sýslumannin á Norðurlandi eystra og lögregluna, heldur dyravarðanámskeið dagana 7. til 16. nóvember 2016, ef næg þátttaka fæst. Kennslan tekur sex kvöld, þrjú kvöld í hvorri viku. Enn eru nokkur pláss laus.

Athugið! Nemendur þurfa að hafa hreint sakavottorð. Lögreglan gefur út leyfi fyrir dyraverði, leyfin eru háð því skilyrði að viðkomandi fari á námskeið.
 
Skráning og upplýsingar á skrifstofu Einingar-Iðju á Akureyri, í síma 460 3600 eða á ein@ein.is frá kl. 8:00 til 16:00 alla virka daga.
 
ATHUGIÐ! Þeir sem voru búnir að skrá sig þurfa að staðfesta skráninguna

Dagskrá: 
7. nóvember               Einingar-Iðjusalurinn 2. hæð Skipagötu 14 Akureyri.
Kl. 19:30                    
  • Afhending gagna, námskeiðið sett:
  • Samskipti dyravarða og lögreglu, reglugerð um löggæslu á skemmtunum og borgaraleg handtaka: Daníel Guðjónsson yfirlögregluþjónn
  • Áfengislög, reglugerð og leyfi vegna áfengisveitinga og fleira:Sigurður Eiríksson, fulltrúi sýslumanns 
 
8. nóvember               Einingar-Iðjusalurinn 2. hæð Skipagötu 14 Akureyri.
Kl. 19:30                    
  • Tryggingar í starfi: Jón Ívar Rafnsson VÍS                                   
  • Réttindi og skyldur: Anna Júlíusdóttir varaformaður Einingar Iðju. 
9. nóvember               Austursíða 2, í sal Fenris
Kl. 19:30                    
  • Handtaka, æfingar: (Koma með íþróttagalla.)Ingþór Örn Valdimarsson 
14. nóvember             Rauði krossinn, Viðjulundi 2.

Kl. 19:30

  • Slysahjálp: Gauti Grétarsson 
15. nóvember             Slökkvistöð Akureyrar v/Árstíg.
Kl. 19:30                    
  • Brunavarnir: Martha Óskarsdóttir, verkefnastjóri við eldvarnareftirlit 
16. nóvember             Einingar-Iðjusalurinn 2. hæð Skipagötu 14.
Kl. 19:30                    
  • Fíkniefni,fræðsla:Kári Erlingsson, rannsóknarlögreglumaður                                   
  • Skoðun skilríkja:Þorsteinn Pétursson, fyrrverandi lögreglumaður                                    

Námskeiðslok, veitingar og viðurkenningar afhentar.