Dyravarðanámskeið - í samvinnu við Einingu-Iðju og lögregluna á Norðurlandi Eystra

Vert er að minna aftur á að síðar í maí verður dyravarðanámskeið í SÍMEY. Námskeiðið fer fram á tímabilinu 16. til 25. maí 2022, þrjú kvöld í hvorri viku. SÍMEY hefur umsjón með námskeiðinu, en það er haldið í samvinnu við Einingu-Iðju og lögregluna á Norðurlandi Eystra. 

Lágmarksaldur:  20 ár

Skilyrði til þátttöku: Enginn getur gengt dyravörslu nema þeir sem lögreglustjóri samþykkir. Nemendur þurfa að hafa hreint sakavottorð.

Umsókn um þátttöku: Fylla þarf út umsókn til lögreglunnar á NE um þátttöku í námskeiðinu  og skila til SÍMEY, Þórsstíg 4.
Nauðsynlegt er að skila passamynd með umsókn. 

Nánari upplýsingar og skráning á námskeiðið

Athugið að námskeiðið er opið öllum og hvetjum við alla til að kanna rétt sinn á endurgreiðslu þátttökugjalds hjá sínu stéttarfélagi.

Félagsmenn Einingar- Iðju geta átt rétt á allt að 90% endurgreiðslu námskeiðsgjalds hjá starfsmenntasjóðum
Hægt er að hafa samband við Einingu-Iðju til að kanna sinn rétt.