Dyravarðanámskeið hófst í gær

Hér er hluti af hópnum sem hóf dyravarðanám í gær
Hér er hluti af hópnum sem hóf dyravarðanám í gær

Í gær hófst dyravarðanámskeið sem SÍMEY og Eining-Iðja halda í samstarfi við lögregluna á Norðurlandi eystra. Kennslan tekur sex kvöld, þrjú kvöld í þessari viku og þrjú kvöld í næstu viku. 24 einstaklingar munu sitja námskeiðið að þessu sinni.

SÍMEY tók nýlega að sér að halda utan um dyravarðanámskeið sem félagið hefur verið með í samstarfi við Lögregluna á Norðurlandi eystra undanfarana áratugi.