Dyravarðanámskeið

Fyrirhugað er að Eining-Iðja og Sýslumaðurinn á Akureyri haldi dyravarðanámskeið eftir páska, ef næg þátttaka fæst. Kennslan tekur sex kvöld, þrjú kvöld á tveimur vikum.

Athugið! Nemendur þurfa að hafa hreint sakavottorð. Sýslumaður gefur út leyfi fyrir dyraverði, leyfin eru háð því skilyrði að viðkomandi fari á námskeið.

Skráning og upplýsingar á skrifstofu Einingar-Iðju á Akureyri, í síma 460 3600 frá kl. 8:00 til 16:00 alla virka daga.