Dyravarðanámskeið

Eining-Iðja, í samstarfi við lögregluna, heldur dyravarðanámskeið á Akureyri á tímabilinu 30. október til 8. nóvember nk., þrjú kvöld í hvorri viku, ef næg þátttaka fæst.  

Athugið, enginn getur gegnt dyravörslu nema þeir sem lögreglustjóri samþykkir. Nemendur þurfa að hafa hreint sakavottorð. 

Skráning fer fram á skrifstofum Einingar-Iðju, ekki er nægjanlegt að hringja, því viðkomandi þarf að fylla út umsókn um að taka þátt í námskeiðinu.

 

Dagskrá: 

30. október kl. 19:30 - Einingar-Iðjusalurinn 2. hæð Skipagötu 14 Akureyri.

Afhending gagna, námskeiðið sett:

Reglugerð um löggæslu á skemmtunum og borgaraleg handtaka:

  Agnes Björk Blöndal löglærður fulltrúi lögreglustjóra

Áfengislög, reglugerð og leyfi vegna áfengisveitinga og fleira:

  Sigurður Eiríksson, fulltrúi sýslumanns

 

31. október kl. 19:30 - Rauði krossinn, Viðjulundi 2.

Slysahjálp:

  Gauti Grétarsson

 

1. nóvember  kl. 19:30 - Austursíða 2, í sal Fenris.

Handtaka, æfingar: (Koma með íþróttagalla.)

  Ingþór Örn Valdimarsson

 

6. nóvember  kl. 19:30 - Slökkvistöð Akureyrar v/Árstíg.

Brunavarnir:

  Jóhann Þór Jónsson, verkefnastjóri við eldvarnareftirlit

 

7. nóvember kl. 19:30 - Einingar-Iðjusalurinn 2. hæð Skipagötu 14 Akureyri.

Tryggingar í starfi:

  Jón Ívar Rafnsson VÍS

Réttindi og skyldur:

  Anna Júlíusdóttir varaformaður Einingar Iðju.

 

8. nóvember kl. 19:30 - Einingar-Iðjusalurinn 2. hæð Skipagötu 14.

Fíkniefni, fræðsla. Skoðun skilríkja, samskipti dyravarða og lögreglu.

  Kári Erlingsson, rannsóknarlögreglumaður

Námskeiðslok, veitingar og viðurkenningar afhentar.