Dyravarðanámskeið hefst í kvöld

Í kvöld hefst dyravarðanámskeið sem Eining-Iðjaheldur í samstarfi við Sýslumannin á Norðurlandi eystra og lögregluna. Kennslan tekur sex kvöld, þrjú kvöld í þessari viku og þrjú kvöld í næstu viku. 20 einstaklingar munu sitja námskeiðið að þessu sinni.

Nemendur þurfa að hafa hreint sakavottorð. Lögreglan gefur út leyfi fyrir dyraverði, leyfin eru háð því skilyrði að viðkomandi fari á námskeið.
 
 
Dagskrá: 
7. nóvember               Einingar-Iðjusalurinn 2. hæð Skipagötu 14 Akureyri.
Kl. 19:30                    
  • Afhending gagna, námskeiðið sett:
  • Samskipti dyravarða og lögreglu, reglugerð um löggæslu á skemmtunum og borgaraleg handtaka: Daníel Guðjónsson yfirlögregluþjónn
  • Áfengislög, reglugerð og leyfi vegna áfengisveitinga og fleira:Sigurður Eiríksson, fulltrúi sýslumanns 
8. nóvember               Einingar-Iðjusalurinn 2. hæð Skipagötu 14 Akureyri.
Kl. 19:30                    
  • Tryggingar í starfi: Jón Ívar Rafnsson VÍS                                   
  • Réttindi og skyldur: Anna Júlíusdóttir varaformaður Einingar Iðju. 
9. nóvember               Austursíða 2, í sal Fenris
Kl. 19:30                    
  • Handtaka, æfingar: (Koma með íþróttagalla.)Ingþór Örn Valdimarsson 
14. nóvember             Rauði krossinn, Viðjulundi 2.

Kl. 19:30

  • Slysahjálp: Gauti Grétarsson 
15. nóvember             Slökkvistöð Akureyrar v/Árstíg.
Kl. 19:30                    
  • Brunavarnir: Martha Óskarsdóttir, verkefnastjóri við eldvarnareftirlit 
16. nóvember             Einingar-Iðjusalurinn 2. hæð Skipagötu 14.
Kl. 19:30                    
  • Fíkniefni,fræðsla:Kári Erlingsson, rannsóknarlögreglumaður                                   
  • Skoðun skilríkja:Þorsteinn Pétursson, fyrrverandi lögreglumaður                                    
 
Námskeiðslok, veitingar og viðurkenningar afhentar.