Dyravarðanámskeið

Fyrirhugað er að Eining-Iðja, í samstarfi við lögregluna, haldi dyravarðanámskeið dagana 7. til 16. nóvember nk., ef næg þátttaka fæst. Kennslan tekur sex kvöld, þrjú kvöld í hvorri viku.

Athugið! Nemendur þurfa að hafa hreint sakavottorð. Lögreglan gefur út leyfi fyrir dyraverði, leyfin eru háð því skilyrði að viðkomandi fari á námskeið.
 
Skráning og upplýsingar á skrifstofu Einingar-Iðju á Akureyri, í síma 460 3600 eða á ein@ein.is frá kl. 8:00 til 16:00 alla virka daga.
 
ATHUGIÐ! Þeir sem voru búnir að skrá sig þurfa að staðfesta skráninguna