Dyravarðanámskeið

Eining-Iðja og Sýslumaðurinn á Akureyri halda dyravarðanámskeið á tímabilinu 20. til 29. október 2014, þrjú kvöld í hvorri viku, ef næg þátttaka fæst.

Skráning og upplýsingar á skrifstofu Einingar-Iðju á Akureyri, í síma 460 3600 og á annajul@ein.is

Athugið!

Nemendur þurfa að hafa hreint sakavottorð. Sýslumaður gefur út leyfi fyrir dyraverði, leyfin eru háð því skilyrði að viðkomandi fari á námskeið.

Þeir sem voru búnir að skrá sig þurfa að staðfesta skráninguna.


Dagskrá námskeiðsins má finna
hér