Desemberuppbót 2017

Eining-Iðja minnir félagsmenn sína á, að þeir eiga rétt á að fá greidda desemberuppbót samkvæmt kjarasamningum. Upphæðin er mismunandi eftir samningum og við hvaða tímabil er miðað til skilgreiningar á fullu starfi. Uppbótina skal greiða í einu lagi og ofan á hana reiknast ekki orlof. 

  • Full desemberuppbót árið 2017 er kr. 86.000 hjá þeim sem vinna á almennum vinnumarkaði. 
  • Full desemberuppbót árið 2017 er kr. 86.000 hjá þeim sem vinna hjá ríki. 
  • Full desemberuppbót árið 2017 hjá þeim sem vinna hjá sveitarfélögum er kr. 110.750.
Með því að smella á línurnar hér fyrir neðan má sjá töflu miðað við viðkomandi samning yfir upphæð desembersorlofsgreiðslu miðað við starfshlutfall og starfstíma.