Desemberuppbót 2015

Eining-Iðja minnir félagsmenn sína á, að þeir eiga rétt á að fá greidda desemberuppbót samkvæmt kjarasamningum. Upphæðin er mismunandi eftir samningum og við hvaða tímabil er miðað til skilgreiningar á fullu starfi. Uppbótina skal greiða í einu lagi og ofan á hana reiknast ekki orlof.

Full desemberuppbót árið 2015 er kr. 78.000 hjá þeim sem vinna á almennum vinnumarkaði. 

Full desemberuppbót árið 2015 er kr. 78.000 hjá þeim sem vinna hjá ríki. 

Full desemberuppbót árið 2014 hjá þeim sem vinna hjá sveitarfélögum var kr. 93.500. (ATH! Búið er að semja en atkvæðagreiðslu lýkur ekki fyrr en á miðnætti 8. desember. Ef samningur verður samþykktur verður desemberuppbótin kr. 100.700)

Með því að smella á línurnar hér fyrir neðan má sjá töflu miðað við viðkomandi samning yfir upphæð desembersorlofsgreiðslu miðað við starfshlutfall og starfstíma. 

Nánari upplýsingar um desemberuppbót - texti úr kjarasamningum