Desemberuppbót 2015

Eining-Iðja minnir félagsmenn sína á, að þeir eiga rétt á að fá greidda desemberuppbót samkvæmt kjarasamningum. Upphæðin er mismunandi eftir samningum og við hvaða tímabil er miðað til skilgreiningar á fullu starfi. Uppbótina skal greiða í einu lagi og ofan á hana reiknast ekki orlof.

Full desemberuppbót árið 2015 er kr. 78.000 hjá þeim sem vinna á almenna vinnumarkaðinum og einnig hjá þeim sem starfa hjá ríkinu

Full desemberuppbót árið 2014 hjá þeim sem vinna hjá sveitarfélögum er kr. 93.500. (Gæti tekið breytingum, upphæðin er frá því í fyrra því ennþá er ósamið)

Með því að smella á línurnar hér fyrir neðan má sjá töflu miðað við viðkomandi samning yfir upphæð desembersorlofsgreiðslu miðað við starfshlutfall og starfstíma.