Eining-Iðja minnir félagsmenn sína á, að þeir eiga rétt á að fá greidda desemberuppbót samkvæmt kjarasamningum. Upphæðin er mismunandi eftir samningum og við hvaða tímabil er miðað til skilgreiningar á fullu starfi. Uppbótina skal greiða í einu lagi og ofan á hana reiknast ekki orlof.
Full desemberuppbót árið 2014 er kr. 73.600 hjá þeim sem vinna á almennum vinnumarkaði.
Full desemberuppbót árið 2014 er kr. 73.600 hjá þeim sem vinna hjá ríki.
Full desemberuppbót árið 2014 hjá þeim sem vinna hjá sveitarfélögum er kr. 93.500.